LulliB - Líf einbúans á móður jörð

Lúlla líf

7/13/2004

Making out in the room

Hæbb

Nú er maður kominn suður eftir fínan sprett fyrir vestan sem er reyndar í norðri jæja jæja það nóg af hlátri kossum og söngvum eins og ættarmót eiga að vera er það ekki? Ég get ekki sagt að ég þekki marga þarna fyrir utan frændsystkinin mín og ég tók smá djamm með þeim þó aðalega Adda Stóra og Sölva litla sem var bara fínt en eftir það þá er ég hættur að drekka nú tekur annað við eða það vona ég. Allavega þá gerðist svoldill skondinn hlutur þarna, ég á frænku sem er 15 ára og er mjög sæt eða eins og unglingar myndu segja rosa beib, ég og frændur mínir vorum að njósna aðeins og tókum eftir því að hún var byrjuð að hanga með Bolvíkingi sem var ekkert skyldur okkur svo hættum að pæla í þessu stríddum henni kannski smá :) þegar við fórum að tjekka á henni aftur þá var hún hvergi og hafði greinilega horfið svo við förum að leita að henni og þessum gaur(þetta var í félagsheimilinu í Bolungarvík með alskonnar skotum og hurðum hér og þar) þannig að við bönkum á allar hurðir, systir hennar sem er 11 ára var með okkur og hún beinti okkur á eina hurð sem henni fannst vera opin áður við hömumst á hurðinni... en engan árangur bar þá kemur pabbi hennar sem er 195 og svoldill rumur gaur sem þú vilt ekki böggast við og hann hjólar hurðina niður og þar voru þau... making out heheh

pabbinn var ekki sáttur

pís

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home